Ríkisstjórn Svíþjóðar mun taka sér viku til þess að ákveða hvort Löfven segi af sér eða boðað verði til kosninga. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, hélt rétt í þessu.
Samþykkt var vantrauststillaga á hendur forsætisráðherranum í morgun en 181 greiddi atkvæði með tillögunni og 109 á móti, 51 sat hjá. Löfven sagðist harma tillöguna en hann er fyrsti forsætisráðherrann í sögu Svíþjóðar til að skilja við embættið með þessum hætti.
Svíþjóðardemókratar lögðu fram vantrauststillöguna, en auk þeirra hafa þingflokkar Moderaterna, Kristilegra demókrata og Vinstriflokksins sagst styðja tillöguna.