Fjórir mótmælendur létust í átökum milli mjanmarska hersins og skæruliðasveita sem eru mótfallnar herforingjastjórninni sem tók völdin í febrúar.
Átök og mótmæli hafa geisað í landinu frá valdaráninu í febrúar. Fjöldi fólks hefur myndað „varnarsveitir“ gegn herforningjastjórninni sem hefur beitt mótmælendur mikilli hörku.
Sveitir hersins réðust inn á heimili í Chan Mya Tharsi á þriðjudagsmorgun eftir nafnlausa ábendingu. Skæruliðarnir mættu hernum með handsprengjum og minni skotvopnum. Einhverjir úr röðum hersins slösuðust samkvæmt tilkynningu frá hernum. Í tilkynningunni kemur einnig fram að fjórir „hryðjuverkamenn“ hafi látist í átökunum. Átta voru handteknir.