Hvítrússneski blaðamaðurinn Roman Protasevich og kærasta hans, Sofia Sapega, hafa verið færð í stofufangelsi að sögn fjölskyldu parsins.
Protasevich og Sapega voru handtekinn í Minsk í maí eftir að farþegaþotunni sem þau voru farþegar í var gert að lenda þar á leið frá Aþenu til Vilnius.
Í gær sást parið í almenningsgarði í Minsk með myndavélateymi sem stjórnarandstæðingar segja vera tilraun til áróðursherferðar yfirvalda í Hvíta-Rússlandi.
Raman and Sofia are still hostages. Yesterday, Lukashenka’s propaganda was shooting the film with them both, to show how happy they are in Minsk. Don't trust a single word! We are dealing with the corrupted regime built on lies and terror, which play with people’s lives. pic.twitter.com/5UTxI1gPLJ
— Franak Viačorka (@franakviacorka) June 25, 2021
Eftir að þau voru handtekin hafa þau bæði birst í útsendingum ríkissjónvarps Hvíta-Rússlands þar sem þau viðurkenna brot sín.
Protasevich og Sapega eru meðal annars ákærð fyrir að hafa efnt til óreiða. Protasevich gæti átt yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi verði hann sakfelldur.