Ríkisstjóri Flórída, Ron DeSantis, segir að fólk „eigi rétt á að vita“ hvers vegna 12 hæða íbúðarhús hrundi í Miami. Leit að eftirlifendum hélt áfram í gær og nótt en hefur enn ekki borið árangur. Fjórir eru látnir og 159 er saknað.
Ekki liggur fyrir hve margir voru í öðrum Champlain-turnanna þegar hann hrundi á fimmtudag. 120 manns hafa þegar gefið sig fram við yfirvöld.
Fólk veltir því nú fyrir sér hvernig byggingin hafi getað hrunið. DeSantis sagði í gær að áherslan væri nú lögð á leit að eftirlifendum. Hann kallaði þó eftir „tímanlegri“ skýringu á því sem gerðist og sagði mikilvægt að fá á hreint hvort um væri að ræða einstaka tilfelli eða stærra vandamál. Rannsókn á hruni turnsins hefst strax í kjölfar björgunaraðgerða.
Byggingu Champlain-turnanna lauk árið 1981.
Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur samþykkt að neyðarástandi verði lýst yfir í Flórídaríki.