Varað var við „meiri háttar galla“ í skýrslu verkfræðinga um Champlain-turninn sem hrundi að hluta í strandbænum Surfside í Flórída aðfaranótt fimmtudags.
Skýrslan, sem kom út árið 2018, var nýlega gerð opinber af bæjaryfirvöldum. Samkvæmt henni voru steypuskemmdir undir sundlaug í byggingunni sökum hönnunargalla þar sem ekki var gert ráð fyrir halla undir sundlauginni. Vatn úr sundlauginni hafði því safnast upp sem mögulega olli skemmdum á burðarvirki byggingarinnar. Ekki liggur fyrir hvort umræddar skemmdir orsökuðu hrun hluta byggingarinnar.
Frank Morabito, verkfræðingur og einn höfunda skýrslunnar, bendir skýrt á að þörf sé á að auka vatnsþéttni undir sundlauginni, sem var ekki gert.
Ekki liggur fyrir hve margir voru í öðrum Champlain-turnanna þegar hann hrundi á fimmtudag. 120 manns hafa þegar gefið sig fram við yfirvöld. Fjórir eru látnir og 159 er saknað.
Leit hefur staðið yfir í rúma þrjá sólarhringa og biðja aðstandendur þeirra sem saknað er fyrir kraftaverki. 136 íbúðir eru í byggingunni og hrundu 55 þeirra.