Forsætisráðherra Lúxemborgar með Covid-19

Xavier Bettel forsætisráðherra Lúxemborgar.
Xavier Bettel forsætisráðherra Lúxemborgar. AFP

Xavier Bettel forsætisráðherra Lúxemborgar hefur verið greindur með Covid-19, nokkrum dögum eftir að hann var viðstaddur leiðtogafund Evrópusambandsins.

Hinir 26 leiðtogar aðildarríkja sambandsins eru þó ekki taldir hafa verið berskjaldaðir fyrir smiti Bettel þar sem þeir umgengust hann ekki í innan við tveggja metra fjarlægð í meira en 15 mínútur.

Bettel, sem hefur einungis fengið fyrri bólusetningu gegn veirunni, er sagður hafa væg einkenni og mun því halda áfram að gangast við skyldum sínum heiman frá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert