Þrítugri konu sem olli stórslysi á fyrsta keppnisdegi Frakklandshjólreiðanna, Tour de France, hefur verið sleppt úr haldi. Henni er þó gert að mæta fyrir dóm í októbermánuði. Þar gæti hún staðið frammi fyrir ákærum um skeytingarleysi og fyrir að valda líkamsmeiðingum óviljandi.
Konan var handtekin á miðvikudag og yfirheyrð. Hún var meðal áhorfenda við keppnisbrautina og hélt á skilti sem á stóð „amma og afi“ á þýsku, en sjónvarpað var frá keppninni.
Skiltið náði inn á brautina og felldi þýska hjólareiðamanninn Tony Martin sem varð til þess að fjöldi keppenda féll á götuna. Konan flúði af vettvangi eftir slysið og hefur lögregla leitað hennar síðan.
Atvikið olli algjörum glundroða. Tafir urðu á keppninni og átta keppendur þurftu að leita læknisaðstoðar. Einn þurfti að draga sig alfarið úr keppninni.