Þar til mánudaginn fyrir tæpum tveimur vikum var ruðningskappinn Carl Nassib líklega þekktastur fyrir eftirminnilega framgöngu í HBO-þáttunum Hard Knocks. Fylgja heimildaþættirnir á hverju ári einu liði (raunar tveimur í fyrra) er það undirbýr sig fyrir tímabilið í NFL-deildinni. Árið 2018 var liði Cleveland Browns fylgt eftir þar sem Nassib lék sem varnarlínuendi (e. defensive end).
Fyrir fundi varnarlínumanna prédikaði Nassib yfir mönnum um vexti, tímaeyðslu á Instagram og annað sem honum fannst kollegar sínir ekki nægilega fróðir um og fór oft og tíðum á kostum. En eins og oft verður hjá þeim sem vekja athygli áhorfenda í þáttunum átti Nassib ekki upp á pallborðið hjá Browns þegar hópurinn hafði verið skorinn niður hjá liðinu.
Hann fékk þó samning hjá liði Tampa Bay Buccaneers nokkrum dögum síðar og lék með liðinu tímabilin 2018 og 2019. Í fyrra gerði Nassib samning við Las Vegas Raiders sem hann lék með á síðasta tímabili og mun leika með í vetur, þá 28 ára.
Það voru þó ekki fjárráð eða ruðningsgeta sem vakti athygli fólks á Nassib mánudaginn 21. júní síðastliðinn. „Mig langaði bara að greina snöggvast frá því að ég er samkynhneigður,“ sagði hann í myndbandi á Instagram-síðu sinni. „Ég ætlaði mér að gera þetta fyrr en líður loks nógu vel til þess að koma þessu frá mér.“
Varð hann þar með fyrsti leikmaður deildarinnar sem kemur út úr skápnum á meðan hann er enn að á vellinum. Áður hafði knattspyrnumaðurinn Robbie Rogers orðið fyrsti opinberlega samkynhneigði karlmaðurinn til að leika í einni af fjórum stærstu íþróttadeildum Bandaríkjanna árið 2013. Jason Collins kom út úr skápnum sama ár þegar hann var samningslaus í NBA-deildinni. Hann gerði samning við Brooklyn Nets og lék með því síðustu leiki tímabilsins 2013-14 en lagði skóna á hilluna eftir tímabilið.
Stuðningsyfirlýsingum rigndi yfir Nassib eftir að hann greindi frá málum sínum. Rodger Goodell, framkvæmdastjóri NFL, sagðist stoltur af Nassib, DeMaurice Smith, framkvæmdastjóri leikmannasamtaka deildarinnar, lýsti yfir stuðningi sínum sem og Mark Davis, eigandi Raiders, og Jon Gruden, þjálfari liðsins. Meira að segja Joe Biden Bandaríkjaforseti skarst í leikinn. Þá hafa aðrir leikmenn einnig lýst yfir stuðningi sínum. Af viðtökunum að dæma mætti ætla að ekkert tiltökumál þyki að vera samkynhneigður íþróttamaður. Árið er jú 2021 og viðhorf til hinsegin fólks hefur breyst til batnaðar síðustu ár.
Málið er þó ekki svo einfalt og eru ummæli Nassib í myndskeiði hans merki um það. „Ég vona að einn daginn verði ekki þörf á myndskeiðum sem þessum og öllu ferlinu sem snýr að því koma út úr skápnum,“ sagði hann.
Chris Simms, fyrrverandi leikstjórnandi Tampa Bay Buccaneers sem nú fjallar um NFL fyrir NBC-sjónvarpsstöðina, sagði í hlaðvarpsþætti í síðustu viku að Nassib muni mæta einhverri mótstöðu innan NFL-deildarinnar, þótt það væri á bak við tjöldin. „Þetta verður ekki samþykkt af öllum í klefanum í NFL,“ sagði Simms. Hann sagðist vona að Nassib yrði tekið opnum örmum og allir innan deildarinnar gætu verið opnir um kynhneigð sína í framhaldinu.
„En það er ekki þannig sem hlutirnir ganga fyrir sig í NFL. Klefinn er mörgum árum á eftir restinni af samfélaginu.“
Nánar er fjallað um mál hinsegin íþróttamanna í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.