Björgunarsveitir í Surfside í Miami telja nú víst að enginn muni finnast á lífi eftir hrun fjölbýlishúss þar fyrir tveimur vikum. Aðgerðir einskorðast því ekki lengur við á að finna fólk á lífi.
Tala látinna er nú 46 en enn er 94 saknað. Kennsl hafa verið borin á 32 af þeim 46 sem hafa fundist látnir. Flestir fundust látnir í rúmum sínum. „Staðreyndirnar segja okkur að það eru engar líkur á að finna neinn á lífi,“ segir Raide Jadallah aðstoðarslökkviliðsstjóri.
Björgunarsveitir svæðisins hafa unnið á tólf tíma vöktum með aðstoð starfsliðs frá Mexíkó og Ísrael síðan slysið varð 24. júní.
Frétt á vef BBC