Alþjóðlega ólympíunefndin hefur hafið formlega rannsókn á ásökunum hvítrússnesku frjálsíþróttakonunnar Krystinu Timanovskayu þess efnis að hún hafi verið neydd til þess að yfirgefa Ólympíuleikana í Tókýó í kjölfar þess að hún gagnrýndi vinnubrögð Íþróttasambands Hvíta-Rússlands.
BBC greinir frá.
„Við þurfum að fá staðreyndirnar á yfirborðið. Það getur tekið tíma,“ sagði Mark Adams, upplýsingafulltrúi Alþjóðlegu ólympíunefndarinnar í dag og bætti við að í millitíðinni væri hugur nefndarinnar við velferð íþróttakonunnar.
Krystina Timanovskaya, 24 ára, hefur fengið landvistarleyfi í Póllandi á grundvelli mannréttinda og dvelur nú í sendiráði Póllands í Tókýó.
Gert er ráð fyrir að hún yfirgefi Japan á morgun samkvæmt stuðningsmönnum hennar.
Timanovskaya sagðist hafa verið neydd til þess að yfirgefa ólympíuþorpið og gert að yfirgefa landið eftir að hafa gagnrýnt þjálfara og vinnubrögð Íþróttasambands Hvíta-Rússlands.
Utanríkisráðherra Japans hefur sagt Timanovskayu örugga.
Alþjóðlega ólympíunefndin hefur óskað eftir greinargerð frá ólympíunefnd Hvíta-Rússlands um atvikið og að henni verði skilað fyrir lok dagsins í dag.