Kúbversk stjórnvöld samþykktu í gær lög sem leyfa stofnun lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Um er að ræða mikla stefnubreytingu í kommúnistaríkinu þar sem ríkisfyrirtæki hafa einungis verið leyfð hingað til.
Nærri mánuður er liðinn frá því að þúsundir Kúbverja flykktust á götur út til þess að mótmæla einræði og hungri sem skekur landann. Mótmælin eru þau mestu síðan í byltingunni árið 1959, sem færði Fidel Castro heitnum forsetastól.
Í það minnsta einn er látinn og hundruð manns voru handtekin í mótmælunum, sem stjórnvöld halda fram að séu á ábyrgð bandarískra stjórnvalda.
Joe Biden Bandaríkjaforseti beitti kúbverska lögreglu refsiaðgerðum fyrir að bæla mótmælin niður og hefur varað kommúnistastjórnina við frekari refsiaðgerðum, láti hún ekki af valdbeitingu og hlusti á kröfur mótmælenda.
Kúbversk stjórnvöld hafa undanfarna mánuði gert tilraun til að flýta aðgerðum og umbótum sem ætlað er að nútímavæða efnahagskerfi Kúbu í þessari verstu kreppu sem eyríkið hefur gegnið í gegnum í um þrjátíu ár.
Skortur á mat, rafmagni og lyfjum hefur aukist til muna undanfarna mánuði, að hluta vegna refsiaðgerða Bandaríkjanna á hendur Kúbu en sömuleiðis vegna víðtækra sóttvarnaaðgerða vegna heimsfaraldurs Covid-19.