Hitamet í Evrópu náðist á Sikiley á Ítalíu í dag en hitastig fór upp í 48,8 gráður. Fyrra met náðist í Aþenu í Grikklandi árið 1977 þegar hitinn fór í 48 gráður.
Háþrýstisvæðið sem skekur nú Suður-Evrópu hefur fengið nafnið Lúsífer og hafa yfirvöld á Ítalíu því lýst yfir neyðarástandi. Búist er við sérstaklega miklum hita í borgum líkt og Róm á föstudag.
Miklir gróðureldar hafa geisað á Ítalíu líkt og í fleiri ríkjum við Miðjarðarhaf en eldar hafa sérstaklega haft áhrif á Sikiley og í Kalabríu í suðurhluta landsins þar sem slökkviliðsmenn glíma við um 300 elda.