Árásarmaðurinn í Plymouth nafngreindur

Jake Davison var 23 ára gamall.
Jake Davison var 23 ára gamall. Ljósmynd/Facebook

Lögreglan í Plymouth nafngreindi rétt í þessu mann sem grunaður er um að hafa orðið fimm manns að bana í borginni í gærkvöldi. Hann hét Jake Davison en Davison, sem var 23 ára gamall, svipti sig lífi eftir skotárásina. 

Á meðal látinna er barn sem hafði ekki náð tíu ára aldri. 

Um var að ræða mannskæðustu skotárás sem hefur verið framin í Bretlandi síðan árið 2010. Lögreglan telur að ekki sé um hryðjuverk að ræða. 

Fjórir létust á vettvangi og einn lést síðar af sárum sínum á spítala. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert