Vandi Afganistan meiri en yfirráð talíbana

Atli Viðar Thor­sten­sen, sviðsstjóri hjálp­ar- og mannúðarsviðs Rauða kross­ins.
Atli Viðar Thor­sten­sen, sviðsstjóri hjálp­ar- og mannúðarsviðs Rauða kross­ins. Ljósmynd/Rauði krossinn

Atli Viðar Thorstensen, sviðsstjóri hjálpar- og mannúðarsviðs Rauða krossins, segir að ógnir við öryggi Afgana séu mun fjölþættari en einungis yfirtaka talíbana þar í landi. Miklir þurrkar séu í landinu og yfirvofandi Covid-bylgja geri þörfina á mannúðaraðstoð brýna.

Starfsmenn Rauða krossins njóti griða hjá talíbönum.
Starfsmenn Rauða krossins njóti griða hjá talíbönum. AFP

Rauði krossinn á Íslandi hefur staðið fyrir neyðarsöfnun, sem að sögn Atla hefur gengið mjög vel og fjölmargir hafi lagt fram aðstoð.

Þá nefnir hann sérstaklega framlag utanríkisráðuneytisins, en 60 milljónir verða veittar til mannúðaraðstoðar í Afganistan. Verður framlaginu skipt jafnt á milli Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðaráðs Rauða krossins.

„Fjármagnið fer fyrst og fremst í að tryggja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu fyrir fólk á átakasvæðum. Þá fer það líka í að bregðast við þurrkum sem hafa herjað á landið og hafa leitt til þess að um ellefu milljónir manna búa við fæðuskort. Sá skortur heldur áfram ef ekki verður brugðist við mjög hratt og afgerandi,“ segir Atli og nefnir að á bilinu 12 til 20 milljónir manna þarfnist mannúðaraðstoðar eða allt að helmingur þjóðarinnar. Hann segir þann fjölda geta aukist á næstu vikum.

12 til 20 milljónir Afgana þarfnast mannúðaraðstoðar.
12 til 20 milljónir Afgana þarfnast mannúðaraðstoðar. AFP

„Það sem á svo eftir að koma í ljós á næstu tveimur til þremur vikum er mögulega ný Covid-bylgja í Afganistan,“ segir Atli og nefnir að einungis 0,5 prósent landsmanna hafi verið bólusett að fullu og tvö prósent hafi fengið annan skammtinn.

Ein til tvær milljónir afganskra flóttamanna í nágrannaríkjum

Atli nefnir að mikilvægt sé að gera sér grein fyrir því að þó að fréttaflutningur gefi það í skyn að gífurlegur fjöldi sé nú að reyna að flýja land þá sé það ekki endilega raunin.

„Myndir sem við sjáum af öngþveitinu á flugvellinum í Kabúl sýna mjög afmarkaðan hluta þeirra vandamála sem fólkið í Afganistan stendur frammi fyrir. Þetta er fólkið sem telur öryggi sínu ógnað í landinu vegna tengsla við Vesturlönd eða að það hefur staðið í einhvers konar mannréttindabaráttu. Þótt þetta sé hópur sem telur þúsundir manna þá er hann fámennasti hópurinn sem á við vanda að stríða.“

Mun fjölmennari hópur er að reyna að flýja í átt að landamærum Írans og Pakistans. „Það eru hundruð þúsunda manna sem flýja í átt að landamærunum og eiga von um að komast yfir. Á sama tíma hafa yfirvöld í Íran og Pakistan gefið það út að það verði ekki tekið á móti flóttafólki frá Afganistan,“ segir Atli og nefnir að nú þegar séu að lágmarki ein til tvær milljónir flóttamanna í þessum ríkjum.

Bróðurpartur þjóðarinnar ekki að fara neitt

„Á þessu ári hefur um 600 þúsund afgönskum flóttamönnum verið snúið til baka og það hefur einungis aukið á neyðina. Átökin, þurrkarnir og Covid-19 koma svo ofan á þetta allt saman.“

Bróðurpartur þjóðarinnar er ekki að fara neitt út af ýmsum ástæðum, en er í brýnni þörf fyrir að fá mannúðaraðstoð. „Það er sá hópur sem Rauði krossinn horfir helst á og vill tryggja heilbrigðisþjónustu, Covid-forvarnir, aðgang að hreinu vatni og fæðuöryggi.“

Atli segir að talíbanar hafi gefið það út að starfsmenn Rauða krossins njóti griða, en hann hefur haft þar starfsemi í hátt í 40 ár.

„Rauði krossinn starfar alltaf með leyfi allra stríðandi aðila og hefur einnig gert það í Afganistan öll þessi ár. Við gerum því ráð fyrir að öll okkar starfsemi haldi áfram og það verði frekar gefið í heldur en hitt.“

Senda fólk á vettvang ef kallið kemur

Spurður hvort einhverjir Íslendingar verði sendir út til Afganistans á vegum Rauða krossins segir Atli það enn óljóst. Hann segir fjölmarga Íslendinga hafa starfað fyrir Rauða krossinn í Afganistan og minnist sérstaklega á Jón Karlsson sem var skotinn til bana við störf fyrir tæpum 30 árum.

„Við erum hluti af Alþjóðahreyfingu Rauða krossins og Rauða hálfmánans og erum auðvitað tilbúin að senda fólk á vettvang ef það verður kallað eftir því.“

Fagna stuðningi ríkisstjórnarinnar

Ríkisstjórn Íslands hefur gefið það út að tekið verði á móti flóttafólki frá Afganistan og segir Atli Rauða krossinn fagna stuðningi ríkisstjórnarinnar við fólk í Afganistan.

„Móttaka þessa fólks verður ekki endilega dæmigerð sé miðað við hefðbundna móttöku flóttafólks og það á á eftir að koma í ljós hvernig útfærslan verður. En við fögnum afgerandi viðbrögðum íslenskra stjórnvalda og viljanum til að styðja við Afgana, bæði þá sem nú takast á við afleiðingar átaka, fæðuskort og alvarlegan heilbrigðisvanda í Afganistan.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert