„Andspyrnan nær enn yfir allan dalinn,“ segir Ali Nazary, talsmaður andstæðinga talíbana (NRF), um ástandið í Panjshir-dal í Afganistan í samtali við fréttastofuna CNN.
Talíbanar segjast hafa náð að sölsa undir sig síðasta landsvæðið í Afganistan sem ekki var undir þeirra stjórn í Panjshir-héraði.
NRF segir það aðkall hins vegar vera rangt en ef það reynist rétt er það í fyrsta skipti sem dalurinn fellur í hendur talíbana síðan átök hófust í landinu fyrir fjórum áratugum.
نمایه تصویری فتح ولایت پنجشیر pic.twitter.com/rvMLVgSD46
— عمر افغان (@umar313afg) September 6, 2021
Panjshir-dalurinn, sem er norður af höfuðborginni Kabúl, er eitt af minnstu héruðum Afganistans. Þar búa á milli 150 til 200 þúsund manns.
„Hernaðarþrýstingurinn mun á engan hátt draga úr ásetningi okkar til þess að halda baráttunni áfram,“ sagði Ahmad Massoud, leiðtogi NRF, í yfirlýsingu.
Massoud er sonur Ahmed Shah Massoud en hann lagði Sovétmenn sem réðust inn í landið árið 1980 og barðist gegn talíbönum á valdatíð þeirra 1996 til 2001.
Massoud biðlar til allra Afgana að taka þátt í uppreisninni og kallar einnig eftir stuðningi alþjóðasamfélagsins.