Þýsk stjórnvöld hafa fordæmt niðurstöðu dómstóls í Hvíta-Rússlandi, sem dæmdi í dag Mariu Kolesnikovu, sem leiddi fjöldamótmælin gegn forsetanum Alexander Lúkasjenksó á síðasta ári, í 11 ára fangelsi.
„Þýska ríkisstjórnin fordæmir óréttlátan dóm gegn Mariu Kolesnikovu og Maxim Znak, og beitingu dómsvaldsins sem pólítísku bælingarvaldi í Hvíta-Rússlandi,“ sagði talsmaður þýska utanríkisráðuneytisins, Andrea Sassea, við blaðamenn á fundi í dag.
Kolesnikova var sakfelld fyrir að grafa undan þjóðaröryggi í landinu.
Lögmaður Kolsesnikovu, Maxim Znak, hlaut einnig 10 ára fangelsisdóm, að sögn fréttamiðils stjórnarandstæðingsins Viktors Babaryko, sem hefur stutt við bakið á Kolesnikovu.
Kolsesnikova er sú eina af helstu leiðtogum mótmælanna vegna forsetakjörs Lúkasjenskós sem býr enn í Hvíta-Rússlandi. Hún hefur verið í varðhaldi í rúmt ár eftir að hafa rifið í sundur vegabréfið sitt þegar átti að vísa henni úr landi.
Sassea segir Kolesnikovu og Znak hafa staðið vörð um frelsi, lýðræði og mannréttindi í Hvíta-Rússlandi allt frá kosningunum óheiðarlegu.