Fjölskyldur þeirra 298 sem létust þegar farþegaþota Malaysia Airlines, flug MH17, var skotin niður árið 2014 yfir Úkraínu, krefjast réttlætis frá Rússlandi. Réttarhöld standa nú yfir í Hollandi í máli þeirra fjögurra sem eru ákærðir fyrir að bera ábyrgð á ódæðinu, þar af eru þrír Rússar.
Vélin var á leið frá Amsterdam til Kuala Lumpur í júlí 2014 og voru því tveir þriðju hinna látnu Hollendingar.
Fólk sem sem missti ættingja í slysinu segjast ekki geta kvatt ástvini sína fyrr en þeir sem bera ábyrgð verði sóttir til saka.
Alþjóðlegt teymi rannsakenda komst að þeirri niðurstöðu að Rússarnir Igor Girkin, Sergey Dubinskíj og Oleg Pulatov auk Úkraínumannsins Leonid Kharchenko, beri ábyrgð á því að BUK Telar-flugskeytið sem grandaði flugvélinni hafi verið flutt yfir landamæri Rússlands til Úkraínu. Rússnesk yfirvöld hafa neitað því frá upphafi að vera viðriðin árásina.
„Ég er full hefndartilfinninga, hatri, reiði og ótta,“ sagði Ria van der Steen en hún missti föður sinn og stjúpmóður í slysinu. Van der Steen var fyrst til að bera vitni í réttarhöldunum.
„Ég veit að þau eru dáin og að ég mun ekki sjá þau aftur, en ég get ekki bundið enda á sorgarferlið fyrr en þeir sem bera ábyrgð á dauða þeirra verða fundir sekir fyrir það sem þeir hafa gert.“
Úkraína og Rússland hafa neitað að framselja hina ákærðu og því eru þeir ekki viðstaddir réttarhöldin. Einungis Rússinn Pulatov hefur lögmann sem er viðstaddur réttarhöldin.
Vanessa Rizk missti báða foreldra sína í flugslysinu, hún sagði þá ákærðu eiga skilið refsingu fyrir „viðbjóðslega glæpi þeirra“. Þá kallaði hún eftir að Vladímír Pútín, Rússlandsforseti svaraði fyrir glæpina.
Gert er ráð fyrir að um 90 ættingjar muni bera vitni fyrir hollenska dómstólnum á næstu dögum. Dómur í málinu verður kveðinn upp eftir ár.