Fulltrúar Andrésar Bretaprins segja að prinsinn hafi ekki fengið stefnu frá lögfræðingum Virginiu Guiffre sem sakar Andrés um að hafa beitt hana kynferðisofbeldi. Guiffre hefur höfðað einkamál gegn prinsinum í New York og þarf Andrés að fá stefnuna áður en málið getur haldið áfram frammi fyrir dómstólum.
Á mánudag þarf bandarískur dómari að úrskurða hvort að Andrés hafi fengið stefnuna.
Andrés er nú í Balmoral-kastala í Skotlandi þar sem Elísabet Bretadrottning ver ávallt sumri sínu.
Fulltrúar prinsins halda því fram að dvöl hans í Balmoral hafi verið löngu ákveðin en aðrir vilja meina að ferðin hafi verið til þess að forðast að rekast á fulltrúa lögfræðinga Virginiu Giuffre.
Þeir hafa margsinnis reynt að afhenda honum stefnuna en öryggisteymi Andrésar hefur stöðvað slíkar tilraunir á síðustu vikum.