Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, viðurkenndi ósigur í Stórþingskosningum nú á tíunda tímanum í kvöld. Hún ávarpaði flokkinn sinn í kvöld og notaði þar tækifærið til þess að óska Jonasi Gahr Støre, formanni Verkamannaflokksins, til hamingju með vænlega kosningu.
Solberg var þó hvergi banginn og sagði að þó Hægriflokkinn væri að kveðja ríkisstjórn í bili væri ætlunin að snúa aftur sterk síðar meir.
Vinstriblokk Noregs var sigurvegari kosninganna með öflugan meirihluta eða 100 þingsæti af 168. Því er átta ára valdatíð Ernu Solberg liðin. Hún tók við sem forsætisráðherra af Jens Stoltenberg árið 2013.