Bandarísk sprengjuflugvél af gerðinni Northrop Grumman B-2 brotlenti í fyrradag á Whiteman-herflugvelli í Missouri, heimavelli vélanna.
Þetta er í annað skipti sem flugvél af þessari gerð brotlendir en vélin er metin á um 100 milljarða króna. Bandaríkjamenn smíðuðu alls 21 B-2 vél á árunum 1994-2000.
Flugmenn sprengjuvélarinnar sluppu heilir frá, en vélin sjálf virðist hafa laskast verulega við brotlendinguna.
Viðvera B-2 vélar á öryggissvæðinu í Keflavík vakti athygli á dögunum en þrjár slíkar voru við æfingar við Íslandsstrendur í lok ágúst þegar þær æfðu meðal annars yfir Atlantshafi með flugsveitum frá Bretlandi og Noregi.
Litlar upplýsingar hafa verið gefnar um slysið en talið er líklegt að sprengjuvélin hafi misst þrýsting á glussakerfi í aðflugi sem olli því að lendingarbúnaður gaf sig.
Engar ljósmyndir hafa verið gefnar út né lekið á netið, að undanskilinni gervitunglamynd sem sýnir vélina hvíla utan flugbrautar á vinstri væng.
Fyrra flugslysið var á Kyrrahafseyjunni Guam árið 2008. sú vél brann til kaldra kola eftir að hafa brotlent eftir rakabilun í tölvukerfi.
Auk slysanna tveggja hefur að auki ein önnur B-2 sprengjuvél skemmst en hún brann að hluta til í í flugskýli og tók þrjú ár að gera hana upp. Talið er líklegt að Whiteman-vélin verði einnig gerð upp, enda kostar stykkið sem fyrr segir 100 milljarða króna.