Yfirvöld í Kína segja bandalag Bandaríkjanna, Bretlands og Ástralíu (Aukus) til að styrkja flotagetu sína á Indlandshafi og Kyrrahafi vera „ákaflega ábyrgðarlaust“ og „þröngsýnt“.
Leiðtogar ríkjanna kynntu bandalagið í gær en það felur meðal annars í sér að Ástralir fá kjarnorkuknúna kafbáta, en stjórnmálaskýrendur segja bandalaginu beint gegn uppgangi Kínverja.
BBC hefur eftir Zaho Lijian, talsmanni utanríkisráðuneytis Kína, að bandalagið „skaði talsvert þann frið sem hefur skapast á svæðinu [...] og yki vígbúnaðarkapphlaup.“
Hann gagnrýndi það sem hann telur vera „úrelt hugarfar kalda stríðsins“ og varaði ríkin þrjú við því að þau væru að „skaða eigin hagsmuni“.
Ritstjórnir kínverskra ríkisfjölmiðla hafa fordæmt bandalagið. Í Global Times segir að Ástralía hafi nú gerst andstæðingur Kína.
Stjórnmálaskýrendur segja bandalagið vera þýðingarmesta öryggissáttmála á milli þriggja þjóða síðan á tímum síðari heimstyrjaldarinnar.