Bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur tilkynnt að rannsakendur í Wyoming hafi úrskurðað að Gabrielle Petito hafi verið myrt.
Gabrielle Petito hvarf er hún var á ferðalagi með kærasta sínum Brian Laundrie. Lík Petito fannst á sunnudaginn í skógi í Wyoming. Í gær hófst húsleit á heimili Laundrie.
„Dánarorsök bíður endanlegrar niðurstöðu krufningar,“ sagði alríkislögreglan.
„Allir sem hafa upplýsingar um hlutverk Laundrie í þessu máli eða hvar hann er staddur núna ættu að hafa samband við FBI,“ sagði alríkislögreglan.