Rússar saka yfirmann tölvuöryggisfyrirtækis um landráð

Talið er að rússnesk yfirvöld hafi beitt sér gegn Sachov …
Talið er að rússnesk yfirvöld hafi beitt sér gegn Sachov eftir að Bandaríkjaforseti lýsti yfir áhyggjum sínum í samtali við Rússlandsforseta fyrr á þessu ári, að Rússar væru ekkert að gera til að sporna gegn árásum rússneskra tölvuþrjóta gegn vestrænum fyrirtækjum. AFP

Yfirvöld í Rússlandi handtóku í dag yfirmann eins af fremstu tölvuöryggisfyrirtækjum landsins, en hann er sakaður um landráð. Svo virðist sem að stjórnvöld í Rússlandi séu að beita sér gegn fyrirtæki sem starfi með vestrænum ríkjum í baráttunni gegn tölvuárásum. 

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, lýsti fyrr á þessu ári, í samtali við Pútín Rússlandsforseta, yfir áhyggjum af því að rússnesk stjórnvöld gerðu ekkert til að sporna gegn rússneskum tölvuárásum sem beindust gegn vestrænum ríkjum. 

Fyrirtækið Group-IB, sem var stofnað árið 2003, sérhæfir sig í að finna og koma í veg fyrir árásir tölvuhakkara. Fyrirtækið starfar m.a. með alþjóðalögreglunni Interpol, sem og fleiri alþjóðlegum stofnunum. 

Héraðsdómstóll í Moskvu hefur úrskurðað að hinn 35 ára gamli Ilya Sachov, sem forstjóri og einn af stofnendum fyrirtækisins, skuli sæta gæsluvarðhaldi í tvo mánuði vegna málsins. Ekki hafa verið gefnar upp frekari upplýsingar um ákæruatriðin. 

AFP-fréttaveitan segir að mál sem varða ákærur um landráð séu vanalega lokuð. Verði menn fundnir sekir geta þeir átt yfir höfði sér 12-20 ára fangelsisdóm. 

Talsmenn Group-IB sögðu í dag að yfirvöld hefðu framkvæmt húsleit á skrifstofum fyrirtækisins í morgun.

„Æðstu stjórnendur og lögfræðiteymi vinna nú að því að fá málið á hreint,“ segir í tilkynningu sem fyrirtækið hefur sent frá sér. 

Þá hefur fyrirtækið ennfremur gefið út, að starfsmenn Group-IB trúi því að Sachov sé saklaus og hafi ástundað heiðarlega viðskiptahætti. 

Tass-fréttastofan í Rússlandi hefur eftir heimildamanni innan raða rússnesku leyniþjónustunnar að Sachov hafi neitað að hann hafi starfað með erlendum leyniþjónustustofnunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert