Pandóraskjölin hafa svipt hulunni af eigendum ríflega 1.500 eigna í Bretlandi sem keyptar voru í gegnum aflandsfélög. Nemur áætlað verðmæti eignanna ríflega fjórum milljörðum punda eða um 700 milljörðum íslenskra króna. BBC greindi frá þessu.
Pandóraskjölin hafa afhjúpað leynileg auðæfi og viðskipti þjóðarleiðtoga, stjórnmálamanna og viðskiptajöfra víða um heim. Hefur uppljóstrun skjalanna verið nefnd einn stærsti leki fjármálaupplýsinga í sögunni.
Meðal eigenda sem ljóstrað var upp um er Tina Green, eiginkona milljarðamæringsins Sir Philip Green sem átti meðal annars fataverslunina Topshop. Hún keypti eignir í gegnum nafnlaus fyrirtæki staðsett á Bresku-Jómfrúareyjunum. Meðal eignanna var 15 milljóna punda íbúð í Mayfair ásamt 10,6 milljóna punda fasteign nærri Buckingham-höll.
Þá festi Al-Thani-konungsfjölskyldan í Katar kaup á tveimur af dýrustu heimilum London í gegnum aflandsfélög. Hefur það sparað henni margar milljónir punda í skattgreiðslur, að því er kemur fram í fréttinni. Eru eignir Al-Thani-fjölskyldunnar metnar á ríflega 650 milljónir punda, eða um 114 milljarða íslenskra króna.
Úkraínski milljarðamæringurinn Gennadiy Bogolyubov á eignir í Bretlandi sem eru metnar á hátt í 400 milljónir punda, eða um 70 milljarða íslenskra króna. Bandaríska alríkislögreglan (FBI) hefur nú verið að rannsaka hann en hundruð eigna hans verið frystar.
Fasteignakaup í gegnum aflandsfélög eru lögleg í Bretlandi eins og stendur. Hins vegar hafa ráðherrar í Bretlandi gefið út yfirlýsingu þess efnis að ný löggjöf sé væntanleg sem kveður á um að ekki verður lengur hægt að eiga fasteignir í gegnum erlend fyrirtæki án þess að nafn eigendanna sé gefið upp. Er þetta meðal annars gert til að stemma stigu við peningaþvætti.