Sebastian Kurz, kanslari Austurríkis, hefur tilkynnt að hann muni víkja úr embættinu. Þrýst hefur verið á hann um það eftir að hann var sakaður um spillingu.
Í sjónvörpuðu ávarpi til landsmanna nú í kvöld sagðist Kurz vilja skapa rými til að tryggja landinu ríkisstjórn sem væri stöðug.
„Við þurfum stöðugleika,“ sagði hann og bætti við að óábyrgt væri að leyfa Austurríki að falla í glundroða á komandi mánuðum á sama tíma og barist sé við faraldur kórónuveirunnar.
Sagðist hann myndu tilnefna utanríkisráðherrann Alexander Schallenberg sem nýjan kanslara. Sjálfur kvaðst hann ætla að halda áfram að gegna formennsku í Þjóðarflokknum og sömuleiðis þingmennsku.
Werner Kogler, formaður Græningja – sem skipa ríkisstjórn ásamt Þjóðarflokki Kurz, sagðist í gær hafa beðið Þjóðarflokkinn að tilnefna annan kanslara þar sem Kurz væri ekki lengur hæfur til starfans.
Kurz hefur neitað því að hafa gert nokkuð rangt. Ítrekaði hann í ávarpi sínu að ásakanir í hans garð hefðu ekkert við að styðjast.
„Ég mun geta útskýrt þetta. Ég er viss um það,“ sagði hann þjóðinni rólegur í fasi.
Greint var frá því í vikunni að kanslarinn sætti rannsókn vegna gruns um að hafa nýtt almannafé til að tryggja sér hagfellda umfjöllun í götublaði.
Grunur leikur á um að á árunum 2016 og til 2018 hafi fjármunir úr fjármálaráðuneyti Austurríkis verið notaðir til þess að greiða fyrir hagfelldar skoðanakannanir. Þessar skoðanakannanir hefðu eingöngu þjónað pólitískum hagsmunum flokksins og birst í götublaðinu Österreich.
Tímasetning þessara meintu fjárveitinga skarast á við það tímabil þegar Kurz komst til valda í Flokki fólksins og leiddi hann í ríkisstjórnarsamstarf með Frelsisflokknum.
Kurz skaust hratt upp á stjörnuhimin austurrískra stjórnmála fyrir áratug, eða árið 2011, en þá tók hann aðeins 24 ára við embætti ráðherra aðlögunarmála.
Tveimur árum síðar varð hann utanríkisráðherra Austurríkis og gegndi því embætti allt fram í desember árið 2017, er hann varð kanslari eftir kosningasigur þar sem hann hafði einna helst lagt áherslu á innflytjendamál, þá 31 árs. Myndaði hann þá ríkisstjórn með Frelsisflokknum.
Hann hefur af sumum verið sakaður um að stjórna Þjóðarflokknum með harðri hendi og mörgum þótti hann fullþögull á meðan rasísk ummæli flokksmanna Frelsisflokksins komust ítrekað í hámæli á meðan samstarf flokkanna varði.
Því stjórnarsamstarfi lauk árið 2019, eftir að upp komst að formaður Frelsisflokksins og varakanslarinn Heinz-Christian Strache hefði rætt við konu sem þóttist vera frænka rússnesks auðkýfings.
Sagðist hún vera að leita að fjárfestingartækifærum í Austurríki og bauðst til að kaupa helmingshlut í dagblaðinu Kronen Zeitung til að breyta ritstjórnarstefnu þess og sjá til þess að blaðið styddi Frelsisflokkinn. Strache tók vel í boðið og sagðist meðal annars myndu sjá til þess að fyrirtæki hennar fengi samninga um opinberar framkvæmdir.
Eftir að upp komst um þetta sagði Strache af sér embætti eins og áður sagði, en enn fremur var Herbert Hickl innanríkisráðherra rekinn sem svo leiddi til þess að aðrir ráðherrar Frelsisflokksins sögðu af sér embættum sínum. Endi var svo bundinn á valdatíma stjórnarinnar þegar samþykkt var vantraustsyfirlýsing í þinginu á hendur Kurz í lok maí sama ár.
Í september 2019 voru svo haldnar kosningar þar sem Kurz tryggði sér embætti kanslara að nýju. Myndaði hann þá ríkisstjórn með Græningjum, þó ekki fyrr en eftir þriggja mánaða þref að kosningum loknum.