Írakar ganga nú til þingkosninga, ári fyrr en þær áttu að fara fram eftir hávær mótmæli vegna spillingar í landinu. Ólíklegt þykir þó að kosningarnar muni hafa mikil áhrif á stjórn landsins.
Líklegt þykir að margir þeirra 25 milljón Íraka sem eru á kjörskrá muni sniðganga kosningarnar vegna vantrausts á stjórnkerfinu.
Þremur klukkustundum áður en kjörstaðir lokuðu í dag höfðu einungis 30% kosið. Síðast þegar var kosið árið 2018 var kjörsókn um 45%.
167 flokkar eru nú í framboði og fleiri en 3.200 einstaklingar eru í framboði, þingsætin eru 329. Búist er við fyrstu tölum á morgun en stjórnarmyndunarviðræður gætu tekið marga mánuði.