Maðurinn sem hefur játað árás með boga og örvar að vopni í Noregi fyrr í vikunni hefur verið fluttur á heilbrigðisstofnun. Þetta var ákveðið eftir að læknar höfðu metið ástand hans í fyrsta sinn frá því árásin var gerð.
„Hann var fluttur á heilbrigðisstofnun á fimmtudagskvöld eftir að heilsa hans hafði verið metin,” sagði saksóknarinn Ann Iren Svane Mathiassen við AFP-fréttastofuna.
Vangaveltur höfðu verið uppi um að maðurinn ætti við andleg veikindi að stríða.
Síðar í dag mun dómari kveða upp úrskurð varðandi gæsluvarðhald yfir manninum.
Espen Andersen Bråthen myrti fimm íbúa bæjarins Kongsberg og særði þrjá í fyrrakvöld í atlögu sem er sú mannskæðasta í landinu síðan 22. júlí 2011.