Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur vottað fjölskyldu breska þingmannsins Davids Amess samúð sína. Amess var stunginn til bana á kjördæmafundi sem haldinn var í Leigh-on-Sea á hádegi að staðartíma í dag.
Í færslu á Twitter segir Guðlaugur að fregnirnar hafi verið hryllilegar. Hann fordæmi slíkt ofbeldi harðlega.
Fram kemur á BBC að 25 ára karlmaður hafi verið handtekinn, grunaður um að hafa orðið Amess að bana.
Boris Johnsson forsætisráðherra segir Amess hafa verið einn „elskulegasta“ stjórnmálamann í breskum stjórnmálum.
Amess hafði verið þingmaður frá árinu 1983. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fimm börn.
Horrific news from England about the killing of Sir David Amess MP. I condemn such violence in strongest terms. My thoughts are with his family, friends and colleagues.
— Guðlaugur Þór (@GudlaugurThor) October 15, 2021