Lögmaður Espen Andersen Bråthen, sem myrti myrti fimm íbúa bæjarins Kongsberg og særði þrjá í vikunni, segist styðja kenningar lögreglu um að andleg veikindi Bråthen hafi verið orsök árásarinnar.
Á vef Aftenposten segir lögregla rannsaki nú ýmsar kenningar um orsök árásarinnar svo sem reiði, hefnd, hvatvísi og öfgatrú en andleg veikindi Bråthen eru talin líklegust.
„Ég er sammála bráðabirgðaniðurstöðum og mati lögreglunnar í málinu,“ er haft eftir Fredrik Neumann, lögmanni Bråthen.
Spurður hvernig skjólstæðingur hans hafi það sagði Neumann einungis að aðstæðurnar hafi áhrif á Bråthen.
Í gær var Bråthen úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald en hann dvelur nú á heilbrigðisstofnun þar sem heimsóknarbann verður í gildi ásamt banni við bréfsendingum. Í frétt Aftenposten segir að Bråthen hafi nokkrum sinnum verður lagður inn á heilbrigðisstofnun.