Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er kominn heim til sín eftir að hafa dvalið á sjúkrahúsi frá því á fimmtudagskvöld með sýkingu.
Clinton var í fjórar nætur á UCI-sjúkrahúsinu í borginni Irvine í Kaliforníu og segja læknar hann hafa hafa brugðist vel við meðferðinni.
Joe Biden forseti sagðist hafa rætt við Clinton í síma á föstudagskvöld og að hann hefði það ágætt.
Clinton er 75 ára en hann gegndi embætti forseta á árunum 1993 til 2001.