Priti Patel, innanríkisráðherra Bretlands, íhugar nú að bjóða þingmönnum lögregluvernd er þeir funda með kjósendum í kjördæmum sínum.
Á vef the Guardian er haft eftir Patel að lögregla hafi nú þegar haft samband við alla þingmenn breska þingsins til þess að ráðleggja þeim hvernig skuli standa að öryggismálum eftir morðið á David Amess á föstudag. Þá er verið að endurskoða öryggisgæslu í þinghúsinu.
„Við þurfum að fylla upp í allar eyður sem valda áhyggjum,“ sagði Patel í sjónvarpsviðtali. Hún sagði að endurskoðun á öryggi þingmanna væri nú forgangsmál.
Amess, sem var 69 ára, var stunginn nokkrum sinnum á fundi með kjósendum í kjördæmi sínu. Bráðaliðar voru komnir á vettvang nokkrum mínútum eftir árásina, en það reyndist ekki nóg og lést Amess af sárum sínum á vettvangi.
Lögreglan handtók í kjölfarið Ali Harbi Ali, 25 ára, sem er Breti af sómalískum uppruna.