Faceboook ætlar að ráða 10 þúsund manns í ríkjum Evrópusambandsins sem eiga að starfa við þróun svokallaðs „metaverse“.
„Metaverse“ er veröld á netinu þar sem fólk getur spilað leiki, unnið og átt samskipti í sýndarveruleika, oft með notkun höfuðbúnaðar.
Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, hefur verið duglegur að vekja athygli á þessari nýjung, að sögn BBC.
Apparently, it's the next big thing. What is the metaverse? https://t.co/eJYdUhP7L8
— BBC News (World) (@BBCWorld) October 17, 2021
„Metaverse hefur möguleika á því að búa til aðgang að nýjum og skapandi félagslegum og efnahagslegum tækifærum. Evrópubúar munu taka þátt í sköpuninni strax frá upphafi,“ sagði í tilkynningu frá Facebook.
Þessi 10 þúsund störf verða sköpuð á næstu tíu árum. Meðal annars verða ráðnir „mjög sérhæfðir verkfræðingar“ í þetta nýja verkefni.