Brasilísk þingnefnd mælir með því að forseti landsins, Jair Bolsonaro, verði ákærður fyrir fjöldamorð. Nefndin fullyrðir að hann hafi viljandi leyft Covid-19 faraldrinum að drepa hundruð þúsunda íbúa landsins með misheppnaðri tilraun til að ná hjarðónæmi og þannig endurreisa efnahagslífið.
Skýrsla nefndarinnar mun birtast í vikunni en dagblaðið New York Times fékk aðgang að henni fyrr.
Skýrslan, sem er 1.200 blaðsíður, kennir stefnu Bolsonaro gegn Covid-19 um dauða 300.000 Brasilíumanna, sem eru um helmingur dauðsfalla í Brasilíu vegna sjúkdómsins. Þá hvetur nefndin brasilísk yfirvöld til að fangelsa forsetann.
Í skýrslu nefndarinnar kemur fram að hún mæli einnig með að ákæra verði gefin út gegn öðrum 69 aðilum, þar á meðal gegn þremur sonum forsetans sem og gegn fjölmörgum núverandi og fyrrverandi embættismönnum.
„Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir mörg þessara dauðsfalla. Ég er persónulega sannfærður um að hann beri ábyrgð á stigmögnun slátrunarinnar,“ sagði Renan Calheiros, brasilískur öldungadeildarþingmaður og aðalhöfundur skýrslunnar, í viðtali í gær.
Í skýrslunni er Bolsonaro einnig sakaður um þjóðarmorð á frumbyggjum í Amazon-regnskóginum en farsóttin þurrkaði út íbúa þar eftir að súrefniskútar kláruðust á spítölum.
Sömuleiðis er forsetinn sakaður um að hafa þrýst á að notuð væru lyf við meðferð gegn Covid-19, eins og hýdroxýklórókíni, sem búið var að sanna að væru árangurslaus gegn veirunni.
Þá er ríkisstjórn hans einnig sökuð um að hafa tafið dreifingu bóluefna í Brasilíu með því að svara ekki yfir hundrað tölvupóstum frá bóluefnaframleiðandanum Pfizer. Í staðinn hafi ríkisstjórnin ætlað að kaupa ósamþykkt bóluefni frá Indlandi á háu verði en síðar hafi verið hætt við samninginn vegna gruns um mútur.
Óvíst er hvort að skýrsla nefndarinnar muni leiða til forsetann til sakargifta í ljósi pólitísks raunveruleika landsins. Af þeim ellefu nefndarmönnum sem eiga sæti í nefndinni eru sjö andstæðingar Bolsonaro.
Forsetinn hefur gagnrýnt rannsókn öldungadeildarinnar og segir hana knúna fram af pólitískum hvötum.