Réttarmeinafræðingur og leitarhundur á vegum Sarasota-héraðs fundu í dag muni í eigu Brian Laundrie, fyrrverandi unnusta Gabby Petito sem fannst látin í september í skóglendi í Bridger-Teton. Kemur þetta fram í frétt CNN.
Foreldrar Laundrie, Chris og Roberta Laundrie, tilkynntu alríkislögreglunni og lögreglunni í North Port í dag að þau myndu taka þátt í leit að Laundrie um morguninn, að sögn lögmanns fjölskyldunnar.
Stuttu eftir að fjölskyldan mætti á svæðið fundust munir í eigu Laundrie. Lögreglan stendur nú fyrir frekari leit á svæðinu.
Þögn Laundrie-fjölskyldunnar hefur vakið nokkra tortryggni í málinu en foreldrar Laundrie neituðu að gefa lögreglu upplýsingar um hvar Laundrie væri niðurkominn þegar leit var hafin að Petito.
Laundrie hefur verið grunaður um aðild að manndrápinu en ekkert hefur spurst til hans frá 14. september, þremur dögum eftir að leit að Petito hófst, þann 11. september. Líkamsleifar Petito fundust tíu dögum síðar og hafa réttarmeinarfræðingar komist að því að dánarorsökin hafi verið kyrking.