Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hefur hótað að reka sendiherra Bandaríkjanna, Þýskalands og átta annarra vestrænna ríkja úr landi eftir að þeir fordæmdu gæsluvarðhald á stjórnarandstöðuleiðtoganum Osman Kavala.
Osman Kavala er 64 ára og fæddur í París og hefur setið í fangelsi án dóms síðan árið 2017. Fangelsisvist hans er talin tákn um vaxandi óþol Erdogans gagnvart pólitískum andstæðingum.
Sendiherrarnir tíu sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu á mánudag þar sem þeir segja að áframhaldandi varðhald yfir Kavala „varpi skugga“ á Tyrkland.
„Ég sagði við utanríkisráðherra okkar að við getum ekki haft þann munað að hýsa þá í okkar landi,“ sagði Erdogan við blaðamenn í ummælum sem tyrkneskir fjölmiðlar birtu í dag.
Kavala hefur verið gefið að sök að tengjast ýmsum mótælum gegn stjórnvöldum árið 2013 og misheppnuðu valdaráni hersins árið 2016.
Í yfirlýsingu sendiherranna hvöttu Bandaríkin, Þýskaland, Kanada, Danmörk, Finnland, Frakkland, Holland, Nýja Sjáland, Noregur og Svíþjóð til „réttlátrar og skjótrar úrlausnar í máli [Kavala]“.