Greta segir stjórnmálamenn bara vera að þykjast

Greta Thunberg.
Greta Thunberg. AFP

Aðgerðarsinninn Greta Thunberg segir að stjórnmálamenn á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP26, séu aðeins að þykjast taka framtíð jarðarinnar alvarlega.

Þetta sagði Thunberg á einum gríðarmargra útifunda í Glasgow í Skotlandi, þar sem ráðstefnan fer fram.

BBC greinir frá.

Thunberg sagði þannig við félaga sína úr samtökunum Fridays for future að róttækar breytingar í loftslagsmálum myndu ekki koma frá stjórnmálamönnum á ráðstefnunni heldur einstaklingum sem taka af skarið.

„Þessi ráðstefna er, enn sem komið er, eins og aðrar fyrri ráðstefnur, sem hafa ekki fært okkur neinar breytingar,“ sagði Thunberg og bætti við:

„Á ráðstefnunni eru bara stjórnmálamenn og leiðtogar, sem þykjast taka framtíð okkar alvarlega, þykjast taka veruleika fólks, sem glímir nú þegar við áhrif loftslagsbreytinga, alvarlega.“

„Við erum orðin langþreytt á þessu og við ætlum að gera breytingar hvort sem þeim líkar það betur eða verr,“ sagði Thunberg svo og sendi skýr skilaboð til þjóðaleiðtoga á ráðstefnu SÞ.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert