Nýja-Sjáland verður áfram lokað útlendingum, næstu fimm mánuðina að minnsta kosti. Chris Hipkins, ráðherra Covid-viðbragðsmála á Nýja-Sjálandi, greindi frá þessu í morgun að staðartíma.
Fullbólusettir Nýsjálendingar í Ástralíu fá að snúa heim frá miðjum janúar, ef þeir eru bólusettir.
Íbúar annarra ríkja þurfa hins vegar að bíða til 30. apríl með að fara til Nýja-Sjálands. Ferðalangar munu þurfa að fara í sjö daga sóttkví við komuna til landsins.
Áður hafði verið greint frá því að stefnt er að því að aflétta útgöngubanni í Auckland, einni stærstu borg Nýja-Sjálands, í næsta mánuði. Útgöngubann hefur verið í gildi í borginni vegna kórónuveirufaraldursins í þrjá og hálfan mánuð.