Þremenningarnir sem voru sakaðir um að hafa skotið hinn 25 ára gamla Ahmaud Arbery til bana í Georgíuríki í Bandaríkjunum voru sakfellldir af kviðdómi í dag.
BBC greinir frá.
Gregory McMichael, 65 ára, sonur hans Travis, 35 ára, og nágranni þeirra, hinn 52 ára gamli William Bryan, voru sakfelldir í dag fyrir morðið á Arbery sem og stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu.
Feðgarnir Travis og Gregory McMichael höfðu elt Arbery er hann var úti að hlaupa í Brunswick í Georgíu í Bandaríkjunum í febrúar í fyrra. Þeir sögðust telja að Arbery hefði átt þátt í innbrotum í hverfinu. Nágranni þeirra William Bryan tók upp skotárásina.