Fyrsta tilfelli nýja afbrigðis kórónuveirunnar, Ómíkron, greindist í Þýskalandi í dag. Afbrigðið greindist fyrst í Suður-Afríku en einstaklingurinn sem er sýktur var nýkominn þaðan.
Að sögn Kai Klose, félagsmálaráðherra í þýska ríkinu Hasse, er einstaklingurinn í einangrun og er verið að raðgreina smitið.
Fyrsta smit Ómíkron í Evrópu greindist í Belgíu í gær í óbólusettum einstaklingi sem kom til landsins frá Egyptalandi 11. nóvember.
Heilbrigðisstofnun Evrópusambandsins hefur varað við því að afbrigðið hafi í för með sér „mikla til mjög mikla“ hættu fyrir Evrópu. Stofnun hefur því ráðlagt ríkjum Evrópusambandsins að takmarka ferðir frá sunnanverðri Afríku.