Mál Luc Besson kvikmyndaleikstjóra, sem sakaður var um nauðgun í kjölfar #MeToo, hefur verið fellt niður af marka má heimildir AFP í Frakklandi.
Luc Besson er heimsfrægur leikstjóri sem leikstýrt hefur myndum á borð við „The Fifth Element“ og „Leon“ en leikkonan Sand Van Roy sakaði Besson um að hafa brotið á sér kynferðislega yfir tveggja ára tímabil, en þau áttu í sambandi á þeim tíma.
Saksóknarar létu málið niður falla í febrúar 2019 og vísuðu til skorts á sönnunargögnum vegna þess. Rannsókn málsins hófst þó að nýju ári síðar í kjölfar þess að Van Roy ákærði hann að nýju og í það sinn með ný sönnunargögn.
Van Roy, sem hefur tekið að sér minni hlutverk í kvikmyndum leikstjórans, er þó ekki eina konan sem hefur ásakað Besson um að hafa kynferðislega áreitt eða brotið á sér. Heilt yfir hafa níu konur sakað Besson um brot og hefur leikstjórinn franski neitað öllum ásökunum.
Besson gengst við því að hafa átt í sambandi við Van Roy en segir ásakanirnar þvætting.
„Málið er lygi frá A til Ö. Ég nauðgaði ekki þessari konu og ég hef raunar ekki nauðgað neinni konu á ævi minni,“ sagði Besson í viðtali árið 2019.