Bandarísk lögregluyfirvöld telja að líkamsleifar sem voru í bifreið sem fannst á árbotni í Alabama tengist 45 ára gömlu mannshvarfi.
Árið 1976 hvarf háskólaneminn Kyle Wade Clinkscales, sem var 22 ára, sporlaust eftir að hafa síðast sést aka Ford Pinto-bifreið sinni frá LaGrange í Georgíuríki áleiðis til Auburn í Alabama.
Fram kemur í umfjöllun breska útvarpsins að vegfarandi hafi séð glitta í bifreiðina í ánni á þriðjudag. Lögregla og björgunarlið fór á vettvang og var bifreiðin dregin upp úr vatninu. Rannsóknarlögreglumenn staðfestu fljótlega að þetta væri bifreið Clinkscales.
Við leit í henni fundust beinaleifar, skilríki og greiðslukort sem voru í eigu hans.
Lögreglustjórinn í Troup-sýslu, James Woodruff, sagði á blaðamannafundi að leitin að Clinkscales hefði staðið yfir í tæpa hálfa öld. „Við tæmdum árfarvegi, leituðum hér og leituðum þar og könnuðum allar mögulegar kenningar, en alltaf án árangurs,“ sagði hann.
Líkamsleifarnar verða nú rannsakaðar til að ganga úr skugga um að þær séu raunverulega af Clinkscales. Lögreglan hafði áður gefið út að hún teldi að hann hefði verið myrtur.
Árið 2005 voru tveir einstaklingar handteknir fyrir að hafa gefið falskan vitnisburð eftir að foreldrar Clinkscales fengu símtal frá ónafngreindri manneskju sem sagðist hafa séð fólk losa sig við líkið um svipað leyti og hann hvarf.
Woodruff segist enn standa í þeirri trú að lögreglan muni komast að raun um hvernig Clinkscales lét lífið. „Var hann myrtur og skilinn þarna eftir? Ók hann út af veginum og endaði þarna? Þetta er eitthvað sem við vonumst til að komast að, en það hafa liðið 45 ár,“ sagði Woodruff.
Clinkscales var einkabarn foreldra sinna. Faðir hans lést árið 2007 og móðir hans fyrr á þessu ári. Woodruff sagði að menn hefðu ávallt vonast eftir því að Clinkscales myndi skila sér aftur heim. „Við bárum ávallt von í brjósti um að við myndum finna hann fyrir hana [móður hans] áður en hún færi. En bara sú staðreynd að við höfum vonandi fundið hann og bílinn er mér mikill léttir,“ sagði Woodruff.