Anne Sacoolas, eiginkona bandarísks erindreka, verður dregin fyrir dóm í Bretlandi fyrir manndráp af gáleysi. Harry Dunn var 19 ára þegar mótorhjól hans varð fyrir bíl Sacoolas sem ók á röngum vegarhelmingi árið 2019.
Sacoolas yfirgaf landið skömmu eftir slysið og gaf Interpol því út alþjóðlega handtökuskipun á hendur henni ef hún skyldi yfirgefa Bandaríkin.
Bandaríkin höfnuðu framsalskröfu breskra yfirvalda á hendur Sacoolas og sögðu hana njóta friðhelgi stjórnarerindreka. Eiginmaður hennar starfaði á vegum bandarísku leyniþjónustunnar í Bretlandi þegar slysið varð.
Nú er hins vegar ljóst að málið mun fara fyrir dómstól í London í janúar. „Þó það séu áskoranir og þetta sé flókið mál, þá erum staðráðin í að tryggja réttlæti í þessu máli,“ sagði talsmaður saksóknara.
Búist er við að Sacoolas muni vera viðstödd réttarhöldin í gegnum fjarfundarbúnað.