Sjóslysið rannsakað sem glæpur

Danska skipinu Karin Hoej hvolfdi við áreksturinn.
Danska skipinu Karin Hoej hvolfdi við áreksturinn. AFP

Saksóknarar í Bretlandi hafa hafið rannsókn á sjóslysi sem varð í morgun á Eystrasaltinu þar sem breskt skip og danskt skip rákust á. Tveggja er enn saknað eftir að danska skipinu hvolfdi. 

Á vef BBC segir að slysið sé rannsakað sem glæpur vegna stórkostlegs gáleysis á sjó meðal annars vegna ölvunar. Árekst­ur­inn varð á milli Ystad og Borg­und­ar­hólms.

Jon­as Franzen, talsmaður sænsku sigl­inga­mála­stofn­un­ar­inn­ar, sagði í sam­tali við sænska rík­is­út­varpið að áhafn­ir á vett­vangi hefðu heyrt hróp frá mönn­um sem lík­lega höfnuðu í sjón­um en neyðarkall barst um hálffjögurleytið í nótt að staðartíma. 

Breska skipið, The Scot Carrier.
Breska skipið, The Scot Carrier. AFP

Kafarar, þyrlur og bátar voru send á vettvang en leit bar engan árangur og var hætt nokkrum klukkustundum síðar. 

Tildrög slyssins eru enn ókunn en lélegt skyggni var vegna þoku. Danska skipið var á leið til Danmörku frá Svíþjóð og hafði engan farm um borð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert