Sérfræðinganefnd Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC) mælir með því að nota önnur Covid-bóluefni en Johnson & Johnson. Nefndin segir sífellt fleiri vísbendingar benda til þess að bóluefnið valdi sjaldgæfum blóðtappa sem hefur valdið að minnsta kosti níu dauðsföllum á síðasta ári.
New York Times greinir frá.
Gögn sem lögð voru fyrir nefndina í dag benda til þess að meiri hætta sé á blóðtappa við notkun bóluefnisins en áður hafði verið tilkynnt um.
Nokkrir nefndarmenn lýstu þeirri von að hægt væri að gera undantekningar í þeim tilvikum þar sem fólk hefur ekki aðgang að bóluefnum Moderna eða Pfizer-BioNTech eða vill fá Johnson & Johnson bóluefni þrátt fyrir að vera upplýst um aukna hættu þess.
Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna á eftir að ákveða hvort hún samþykki tilmæli nefndarinnar.