39 fórust eftir að eldur kviknaði í ferju

Að minnsta kosti 37 manns fórust í eldsvoðanum.
Að minnsta kosti 37 manns fórust í eldsvoðanum. AFP

Að minnsta kosti 39 manns fórust eftir að eldur kviknaði í ferju í Bangladess þar sem alltof margir voru um borð.

Margir farþegar stukku fyrir borð til að sleppa undan eldinum og drukknuðu einhverjir þeirra.

Eldsvoðinn varð snemma í morgun skammt frá hverfinu Jhalokathi, um 250 kílómetrum suður af höfuðborginni Dhaka.

Talið er að eldurinn hafi kviknað í vélarrúmi ferjunnar.

Að minnsta kosti 500 manns voru um borð í ferjunni þrátt fyrir að reglur kvæðu á um að aðeins 420 mættu vera þar. Margir þeirra voru á leið heim til sín frá höfuðborginni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert