Maður af frönskum og sýrlenskum uppruna hefur verið handtekinn af frönsku lögreglunni grunaður um að hafa útvegað hluti til þess að útbúa efnavopn í Sýrlandi í gegnum útflutningsfyrirtæki sitt.
Maðurinn fæddist árið 1962 og var handtekinn í Suður-Frakklandi í gær. Hann er nú í varðhaldi og er grunaður um „samsæri og hlutdeild í að fremja glæpi gegn mannkyninu og stríðsglæpi“ samkvæmt heimildum AFP-fréttaveitunnar.
Um hálf milljón manns hefur látið lífið í stríðinu í Sýrlandi. Stjórnvöld þar neita hins vegar að þau notist við efnavopn og segjast hafa látið öll slík vopn af hendi árið 2013 vegna samkomulags við Bandaríkin og Rússland.
Samkomulagið var gert í kjölfar sarín-gasárásar í Ghouta-hverfinu í Damaskus þar sem um 1.400 manns létust.