Útgöngubann hefur tekið gildi í kínversku borginni Yan'an vegna útbreiðslu kórónuveirunnar en áður hafði slíkt bann verið í gildi í borginni Xi'an frá því í síðustu viku. Stjórnvöld reyna með þessu að hemja útbreiðslu veirunnar.
Alls greindust 209 smit í landinu í gær en það er mesti fjöldi smita þar síðan í mars í fyrra.
Rúmar tvær milljónir búa í borginni Yan'an, sem er um 300 kílómetra norðan við Xi'an.
Kína hefur tekið mjög hart á öllum smitum eftir að faraldurinn fór af stað, en þar er stefnan að ná smitum niður í núll. Hafa takmarkanir á landamærum meðal annars verið mjög miklar, krafa hefur verið uppi um langa sóttkví og útgöngubann hefur verið sett á þar sem smit hafa komið upp. Þrátt fyrir það virðist veiran hafa náð að grassera undanfarið og tilfellum fjölgar.
Von er á fjölda erlendra gesta til Kína þegar vetrarólympíuleikarnir fara fram í Peking í febrúar.