Töluverður eldur logar í byggingu suðurafríska þingsins í Höfðaborg. Svartur reykur stígur til himins en af myndskeiðum á samfélagsmiðlum má sjá að eldurinn logar glatt.
Fjöldi slökkviliðsmanna berst við eldinn en upptök hans eru ókunn.
Talsmaður slökkviliðsins sagði í samtali við AFP-fréttastofuna að illa gengi að hemja eldinn.
Þinghúsið samanstendur af þremur byggingum en sú elsta var vígð árið 1884. Hinar eru frá þriðja og níunda áratug 20. aldar.