Gríðarleg eyðilegging hefur orðið í byggingu suðurafríska þingsins í Höfðaborg. Að sögn talsmanns er þjóðþingið brunnið til kaldra kola en eldurinn braust út klukkan sex í morgun að staðartíma.
Á vef BBC er greint frá því að Cyril Ramaphosa, forseti Suður-Afríku, hafi heimsótt vettvang í dag og sagt að um sé að ræða „hræðilegan atburð“.
Forsetinn sagði að brunavarnakerfið hefði brugðist en þakkaði viðbragðsaðilum fyrir að bregðast hratt við. Um 70 slökkviliðsmenn eru enn að störfum.
Eldurinn kviknaði á skrifstofum á þriðju hæð og breiddist fljótt út í sal þjóðþingsins. Enginn slasaðist í brunanum og eru upptök eldsins enn ókunn, einn er þó í haldi lögreglu.
Í gær fór fram jarðarför Desmunds Tutus erkibiskups í í St. George-dómkirkjunni sem er rétt við þinghúsið. Ramaphosa minntist því á að Tutu hefði orðið niðurbrotinn hefði hann séð brunann.