Sérstakur aukafundur utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins var haldinn í dag vegna stöðu öryggismála í Evrópu og hernaðaruppbyggingar Rússlands í og við Úkraínu. Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra tók þátt í fundinum í fjarveru Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.
Í tilkynningu frá stjórnarráðinu segir að á fundinum, sem haldinn var með fjarfundarbúnaði, hafi verið rædd sú alvarlega staða sem upp er komin vegna aðgerða Rússlands á þessu svæði og áhyggjur af því að hætta sé á hernaðarátökum.
Á fundinum lögðu ráðherrar áherslu á að frekari brot myndu hafa í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir Rússland. Einnig var áréttaður vilji bandalagsríkja til að ræða stöðu öryggis- og varnarmála í Evrópu en þó sérstaklega þá ógn sem steðjar að Úkraínu og þar með stöðugleika í okkar heimshluta.
Í tilkynningu segir að íslensk stjórnvöld leggi áherslu á virðingu fyrir alþjóðalögum og að hernaðarmáttur megi ekki ráða för í alþjóðasamskiptum. Hernaðaruppbygging við Úkraínu og hótanir Rússlands í garð bandalagsríkja séu því mikið áhyggjuefni fyrir ríki Atlantshafsbandalagsins og önnur vestræn lýðræðisríki.
Fundur í NATO-Rússlandsráðinu hefur verið boðaður í því skyni að halda áfram uppbyggilegu samtali. Sá fundur verður 12. janúar.